Music: Anna Thorvaldsdottir
Þann heilaga kross vor herra bar,
á holdi hans voru dauðleg sár.
Fyrir oss alla hann fullnað gjörði,
vér urðum ei keyptir með öðru verði.
Því hlýðið, kæru kristnir menn,
hvað kennir oss öllum skriftin senn.
Þeir sem vist á himnum hljóta,
herrans pínu þeir verða að njóta.
Einasta Guði sé æra og dýrð,
er sinn son sendi hingað á jörð.
Hann stýri og stjórni oss öllum saman,
svo vér hann óttumst og elskum. Amen.