Þegar ég sá þig fyrst
Þá ég vissi Það.
Enginn vafi,
Tíminn stóð í stað.
Allt var svo hljótt
Og umhverfið svaf.
Þetta var ást
Sem ég einn vissi af.
Er ég vakandi, eða hvað?
Þú þyrftir helst að segja mér það.
Þú ert sem draumur minn.
Þú ert fullkomin.
Og þessi ást
Er bæði sönn og heit.
Heitari en
Nokkur maður veit.
Og þú ert í raun og veru til,
Þú ert sú eina sem ég vil.
Bjarmi bláu augna þinna
Og hlýlegt brosið veita mér yl.
Er ég vakandi, eða hvað?
Þú þyrftir helst að segja mér það.
Þú ert sem draumur minn.
Þú ert fullkomin.
Þú ert sem draumur minn.
Þú ert fullkomin.