Aragrúi vonlausra væntinga
eins og óútfyllanlegt eyðublað
Ótæmandi listi vonbrigða, sjálfsvorkunnar,
vottaður stimpli fyrirlitningar
Dagur sérhver
biðröð mistaka
Biðröð mistaka
Reginskari hálfreyndra hugmynda
eins og ástarbréf ofan í tætara
Ævistarfi raðað í kompuna, neðstu hilluna
Ólesnir, rykfallnir doðrantar
Dagur sérhver
biðröð mistaka
Biðröð mistaka
Nauðbeygður opnarðu augun,
þú vissir aldrei að ég elska þig – þú varst hatari
Þrálátur en samt svo þögull,
hrópandinn í eyðimörkinni – þú hataðir
Nauðbeygður opnarðu augun,
þú vissir aldrei að ég elska þig – þú varst hatari
Þrálátur en samt svo þögull,
hrópandinn í eyðimörkinni – þú hataðir
Biðröð mistaka
Eins og ástarbréf ofan í tætara
Aragrúi
Aragrúi vonlausra væntinga
Biðröð mistaka