HINN ALRÆMDI

Lyrics: Jóhann Dagur Þorleifsson Music: Jóhann Dagur Þorleifsson/Einar Vignir Sigurjónsson/Sigurður Snær Guðmundsson [Intro] "Sumir eru fæddir glæpamenn og vita ekki muninn á réttu og röngu! Það eina sem þeir skilja er hnefinn! Þeir eru stórhættulegir samfélaginu!" "...hann sem er mesti ræningjaforingi fjalla og skóga!" "Hann fór gjörsamlega í ræsið" "Hann sagði alltaf að hann væri saklaus"
[Verse 1: RUDDAGADDUR] Með lögum skal land byggja svo ég samdi lag Um það þegar ég datt í ham, rændi, ruplaði, seldi dóp og lamdi mann Braut lag sem átti að fylgja þegar ég framdi það Og varð til trafala og löggu-kallinn, hann var var við það Var handtekinn í nafni laganna fyrir allan andskotann En kallinn kann ekki að skammast sín svo sparið skammirnar Ég get svo svarið það, ég rúllaði óvart af stað Og gekk til liðs við bandalag sem framdi skandala, yo Moðerfokkerar sem spila grimman game Flestir vargar sem þið þekkið ekki grimmari en þeir Menn sem fara eitthvert heim, singing in the rain Og fara chillaðir með brеitt bros og illa sáttir heim Framkvæmdi hluti sem eru mannskæðir Hata samt glæpi en elska glæpsamleg athæfi Til í allt kjaftæði sem skapar vandræði Kallinn rændi rauðri málningu og málað'allan bæinn
[Chorus: RUDDAGADDUR] Já, yo, ég er á óðu róli Vilt ekki eiga mig sem óvin, homie Skalt óttast eins og ég sé kóngulóin Já, ég er hinn alræmdi Jói bófi Yo, ég er á óðu róli Vilt ekki eiga mig sem óvin, homie Skalt óttast eins og ég sé kóngulóin Já, ég er hinn alræmdi Jói bófi
[Verse 2: RUDDAGADDUR] Búinn að brjóta reglurnar on the regular Síðan ég lærði að naga neglurnar Nota enskusletturnar og reykja retturnar Og kalla konur kellingar og skoða helling af Myndum þar sem þær eru naktar og settar í stellingar Ég fór og skemmdi margt og mikið Og sénsinn að ég borgaði fyrir skemmdirnar Strækaði eins og þrumur og eldingar Með skítugar hendurnar Tók tökum og það engum vettlinga Rataði á dómstóla punktur is og var sléttsama Ekkert að fokk'aránd, grímur og blaka-bláw Hoppum á dílerinn þinn og fremjum vopnað rán Við erum hunangs greifingjar og ekkert getur stoppað þá Forðist frá! Fokk sama þótt við heyrum þetta fokking sánd Þetta "Woop! Woop!" - Þetta hljóð í löggunni Að skipta sér af því sem kemur ekki löggum við En löggi minn, ég er saklaus og neita allri sök Ég var bara í mínu sakleysi að brjóta lög
[Chorus: RUDDAGADDUR] Já, yo, ég er á óðu róli Vilt ekki eiga mig sem óvin, homie Skalt óttast eins og ég sé kóngulóin Já, ég er hinn alræmdi Jói bófi Yo, ég er á óðu róli Vilt ekki eiga mig sem óvin, homie Skalt óttast eins og ég sé kóngulóin Já, ég er hinn alræmdi Jói bófi
[Skit] "Svona eins og minkurinn Veiðir sér bara til skemmtunar Miskunarlaus skepna... Já, minkurinn er líka rosalega krúttlegur En þú vilt samt ekkert að hann sleppi inní hænsnakofa.."
[Verse 3: MINKURINN] Oh shit, MINKURINN er mættur Lömbin eiga ekki séns og mýsnar eru í hættu Háma í mig alla stórlaxa í læknum Eins fokking gott að hænsnakofinn þinn sé læstur Getið ekki siðað mig til, þið skuluð forðast frá mér Verðlaun fyrir þann sem nær í skottið á mér Já, skítugt er orðið á mér Er með lykilinn af Breiðholti á mér
[Outro] "Stelpur, passið ykkur á honum, hann er glæpamaður.." "Ég er í Lögreglunni í Reykjavík" "Lögreglan í Reykjavík kemur þessu heimili ekkert við" "Hah! Þennan brandara verð ég að segja strákunum í ræsinu! Hahahahahaha...." "Hvað er þetta ræsi eginlega?" "..Ræsið? Það er... Heyrðu mig, sagði ég þér ekki að þegja?"