Lyrics: Magnús Jóhann Ragnarsson/Bríet Ísis Elfar/Birnir Sigurðarson
Music: Bríet Ísis Elfar/Birnir Sigurðarson/Magnús Jóhann Ragnarsson
Horfðu á mig
Sérðu það sama og ég?
Opin sárin
Færa mig skref frá þér
Enn þú heldur mér fastri
Má ég skjóta rótum mínum
Gegnum mold og stein og tengjast þér
Á ég?
Eða er viljinn okkar horfinn
Ég þarf einhver svör svo að ég get
Sleppt þér
Tel hvert spor sem að ég tek
Í burtu frá þér
Tel hvert spor sem að ég tek
Í burtu frá þér
Kveð öll árin og allt sem ég var með þér
Þurrka tárin og umvef mér englaher
Sem lýsir mér veginn
Það er svo sárt að sofna
Og dreym'um allt sem áður var
Enn það er ennþá verr'að vakna
Sjá þig í öllu hvern einasta dag
Svo ég
Tel hvert spor sem að ég tek
Í burtu frá þér
Tel hvert spor sem að ég tek
Í burtu frá þér
Reyn'að losna slíta þráð
Enn djúpar rætur rofna ekki frá
Frá þér
Tel hvert spor sem að ég tek
Burtu frá þér
Dreymdi þig ganga fram af
Og gjaldið sem ég greiði er sanngjarnt
Hjartað mitt fer ekki í samband
Þetta nýja kostaði það gamla
Mitt síðasta víti til varnaðar
Þú hefðir aldrei geta bjargað mér
Tel hvert spor sem að ég tek
Í burtu frá þér
Tel hvert spor sem að ég tek
Í burtu frá þér
Reyn'að losna slíta þráð
Enn djúpar rætur rofna ekki frá
Frá þér
Tel hvert spor sem að ég tek
Burtu frá þér